Þorláksskóli

Þorláksskóli er sérskóli fyrir einhverf börn og hefur starfsemi sína haustið 2026 í Garðabæ.

Styrkja Þorláksskóla

Með þínum stuðningi getum við byggt upp sérhæft skólaumhverfi fyrir einhverf börn. Veldu upphæð hér fyrir neðan og greiddu á öruggan hátt í gegnum Teya.

2.500 kr.

5.000 kr.

10.000 kr.

25.000 kr.

Viðburðir framundan

Hlaupum fyrir Þorláksskóla

Taktu þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 22. ágúst og hlauptu fyrir Þorláksskóla – eða styrktu einn af hlaupurunum okkar. Öll áheit renna til uppbyggingar skólans.

Styrktartónleikar

Komdu með okkur í einstakt tónleikakvöld til styrktar uppbyggingu Þorláksskóla. Tónleikarnir bera heitið Bíltúr með Jóni Kristjáni því listamenn kvöldsins eru í sérstöku uppáhaldi hjá Jóni og tónlist þeirra fylgir honum gjarnan í bíltúrum.

Skólavist 2026–2027
Innritun fyrir skólaárið er lokið. Fyrir fyrirspurnir um framtíðarpláss má hafa samband við skólann.

Hugmyndafræði
Þorláksskóla

Markmið Þorláksskóla er að veita einhverfum börnum menntun sem byggir á þeirra styrkleikum, þörfum og áhugasviðum.

Starf skólans byggir á TEACCH hugmyndafræðinni, þar sem lögð er áhersla á skýrleika, skipulag og sjónrænan stuðning. Fyrirsjáanlegt og rólegt umhverfi veitir börnum öryggi og stuðlar að sjálfstæði og námi á þeirra eigin hraða.

Jafnframt styðjumst við við DIR/Floortime hugmyndafræðina, sem leggur áherslu á tengslamyndun, samskipti og innri hvatningu barnsins. Með því að mæta barninu þar sem það er statt í þroska og tilfinningalegri getu eflum við félagsfærni, samskipti og tilfinningastjórnun á öruggan og náttúrulegan hátt.

Kennsla fer fram í leik, samveru og daglegum aðstæðum, þar sem tengsl og traust eru undirstaða alls náms. Starf skólans er jafnframt mótað af þekkingu á taugaþroska barna og áhrifum streitu á nám og hegðun. Því leggjum við ríka áherslu á fyrirsjáanleika, skýra dagskipan, skynvænt umhverfi og stöðug tengsl við fullorðna sem barnið treystir.

Við vinnum samkvæmt áfallamiðaðri nálgun, þar sem öryggi, ró og tengsl eru í forgrunni. Þegar barn upplifir traust og stöðugleika skapast forsendur fyrir nám, vöxt og virkri þátttöku.

Gott starfsumhverfi er lykilatriði í starfi Þorláksskóla. Við leggjum áherslu á ró, skýrleika og stuðning í starfi kennara, þar sem vellíðan starfsfólks skapar meiri nærveru og öryggi fyrir börnin.

Foreldrasamvinna er grundvallarþáttur í starfi skólans. Við vinnum í nánu samstarfi við foreldra til að tryggja samfellu milli heimilis og skóla og að styrkleikar barnsins fái að njóta sín í báðum umhverfum.