Þorláksskóli
Þorláksskóli er sérskóli fyrir einhverf börn
Hjá okkur eru öryggi, tengsl og vellíðan grunnur að námi. Við mætum hverju barni út frá styrkleikum þess, áhuga og þörfum og sköpum svigrúm til að læra og þroskast á eigin forsendum.
Í skólanum leggjum við áherslu á litla nemendahópa, sjónrænan stuðning og náið samstarf við fjölskyldur.
Markmið Þorláksskóla er að veita einhverfum börnum menntun sem byggir á þeirra styrkleikum, þörfum og áhugasviðum.
Starf skólans byggir á TEACCH hugmyndafræðinni, þar sem lögð er áhersla á skýrleika, skipulag og sjónrænan stuðning. Fyrirsjáanlegt og rólegt umhverfi veitir börnum öryggi og stuðlar að sjálfstæði og námi á þeirra eigin hraða.
Jafnframt styðjumst við við DIR/Floortime hugmyndafræðina, sem leggur áherslu á tengslamyndun, samskipti og innri hvatningu barnsins. Með því að mæta barninu þar sem það er statt í þroska og tilfinningalegri getu eflum við félagsfærni, samskipti og tilfinningastjórnun á öruggan og náttúrulegan hátt.
Kennsla fer fram í leik, samveru og daglegum aðstæðum, þar sem tengsl og traust eru undirstaða alls náms. Starf skólans er jafnframt mótað af þekkingu á taugaþroska barna og áhrifum streitu á nám og hegðun. Því leggjum við ríka áherslu á fyrirsjáanleika, skýra dagskipan, skynvænt umhverfi og stöðug tengsl við fullorðna sem barnið treystir.
Við vinnum samkvæmt áfallamiðaðri nálgun, þar sem öryggi, ró og tengsl eru í forgrunni. Þegar barn upplifir traust og stöðugleika skapast forsendur fyrir nám, vöxt og virkri þátttöku.
Gott starfsumhverfi er lykilatriði í starfi Þorláksskóla. Við leggjum áherslu á ró, skýrleika og stuðning í starfi kennara, þar sem vellíðan starfsfólks skapar meiri nærveru og öryggi fyrir börnin.
Foreldrasamvinna er grundvallarþáttur í starfi skólans. Við vinnum í nánu samstarfi við foreldra til að tryggja samfellu milli heimilis og skóla og að styrkleikar barnsins fái að njóta sín í báðum umhverfum.
Hugmyndafræði
Þorláksskóla
Skólavist 2026–2027
Innritun fyrir skólaárið er lokið. Fyrir fyrirspurnir um framtíðarpláss má hafa samband við skólann.