Bakhjarlar
Bakhjarlar framtíðarinnar
Við erum ekki aðeins að opna nýjan skóla. Við erum að byggja upp nýja leið í þjónustu við einhverf börn og fjölskyldur þeirra á Íslandi.
Þorláksskóli er fyrsti áfanginn í stærri framtíðarsýn um samfellda, sérhæfða þjónustu sem mætir börnum í þeirra nærumhverfi, byggir á styrkleikum þeirra og getur fylgt þeim frá fyrstu árum og fram á fullorðinsár.
Saman byggjum við upp öruggt og sérhæft námsumhverfi þar sem hvert barn fær að njóta styrkleika sinna.
Frá skóla til heildstæðrar þjónustu
Þorláksskóli er fyrsti áfanginn í stærri framtíðarsýn um samfellda þjónustu, þekkingu og stuðning fyrir einhverft fólk og aðstandendur. Markmið okkar er að byggja upp íslenskt þekkingar- og þjónustusamfélag á sviði einhverfu þar sem skólastarf, ráðgjöf, fræðsla og sérhæfð þjónusta vinna saman.
Sérhæfður skóli
Einstaklingsmiðað skólastarf þar sem öryggi, tengsl, skynúrvinnsla, samskipti og möguleikar hvers nemanda eru í forgrunni.Ráðgjöf og handleiðsla
Stuðningur við börn, fjölskyldur og starfsfólk í öðrum skólum og sveitarfélögum, einnig þegar barn stundar ekki nám við Þorláksskóla.Fræðsla
Námskeið, handleiðsla og innleiðing á TEACCH/DIR Floortime og öðrum taugaþroska-, tengsla- og skynmiðuðum nálgunum.TEACCH þekkingasetur fyrir fullorðna
Framtíðarþjónusta sem styður við sjálfstæði, þátttöku, nám og lífsgæði einhverfs fólks eftir að skólagöngu lýkur.Snemmtæk íhlutun á leikskólastigi
Sérhæfð þjónusta og stuðningur frá fyrstu árum, í nánu samstarfi við fjölskyldur og nærumhverfi barnsins.Þjónusta í nærumhverfi
Markmiðið er að þróa þjónustuna áfram og gera þekkingu og sérhæfðan stuðning aðgengilegan börnum og fjölskyldum víðar um landið.Þorláksskóli er óhagnaðardrifið verkefni sem varð til af foreldraást og vegna þess að núverandi kerfi nær ekki alltaf að mæta þörfum einhverfra barna og fjölskyldna þeirra. Við trúum því að hægt sé að gera betur og viljum vera hluti af lausninni.
Öll vinna við undirbúning og uppbyggingu Þorláksskóla hefur verið unnin í sjálfboðastarfi. Að baki verkefninu liggja ótal vinnustundir, sterk framtíðarsýn og einlægur vilji til að skapa varanlegar breytingar.
Opinber framlög standa að mestu undir grunnrekstri skólastarfsins en uppbygging sérhæfðs námsumhverfis, kaup á búnaði, þróun námsefnis, fræðsla starfsfólks og aðkoma sérfræðinga kalla á meira fjármagn. Stuðningur bakhjarla gerir okkur kleift að byggja starfsemina upp af meiri krafti og leggja grunn að þjónustu sem getur náð til fleiri barna og fjölskyldna í framtíðinni.
Framlag þitt getur meðal annars stutt við:
Sérhæft náms- og samskiptaefni
Skynvænt, öruggt og aðgengilegt námsumhverfi
Skyn-, hreyfi- og leikbúnað
Fræðslu og þjálfun starfsfólks
Aðkomu sérfræðinga og faglega ráðgjöf
Þróun íslensks kennslu- og stuðningsefnis
Ráðgjöf og þekkingarmiðlun til fjölskyldna, skóla og sveitarfélaga
Uppbyggingu framtíðarþjónustu fyrir einhverft fólk
Hægt er að leggja uppbyggingu Þorláksskóla lið með fjölbreyttum hætti. Fyrirtæki geta veitt fjárstyrk, gefið búnað eða þjónustu, miðlað sérþekkingu eða boðið afslátt af vörum og vinnu. Einstaklingar geta einnig stutt verkefnið með frjálsu framlagi, stóru eða smáu. Öll aðstoð skiptir máli og hjálpar okkur að byggja upp betra og sérhæfðara umhverfi fyrir nemendur skólans.
Við opnum skóla í dag en byggjum upp þjónustu til framtíðar
Frjáls framlög á Jónsvegur ehf.
Kennitala 410724-1970.
Reikningsnúmer 0133-26-21705
Fyrirtæki og samstarf: vigdis@thorlaksskoli.is