Þorláksskóli
Þorláksskóli er sérskóli fyrir einhverf börn og hefur starfsemi sína haustið 2026 í Garðabæ.
Umsókn um skólavist
Umsóknarfrestur er til 30.mars
Þorláksskóli tekur eingöngu við umsóknum fyrir börn fædd 2017–2020.
Hugmyndafræði
Þorláksskóla
Markmið Þorláksskóla er að veita einhverfum börnum menntun sem byggir á þeirra styrkleikum, þörfum og áhugasviðum.
Starf skólans byggir á TEACCH hugmyndafræðinni, þar sem lögð er áhersla á skýrleika, skipulag og sjónrænan stuðning. Fyrirsjáanlegt og rólegt umhverfi veitir börnum öryggi og stuðlar að sjálfstæði og námi á þeirra eigin hraða.
Jafnframt styðjumst við við DIR/Floortime hugmyndafræðina, sem leggur áherslu á tengslamyndun, samskipti og innri hvatningu barnsins. Með því að mæta barninu þar sem það er statt í þroska og tilfinningalegri getu eflum við félagsfærni, samskipti og tilfinningastjórnun á öruggan og náttúrulegan hátt.
Kennsla fer fram í leik, samveru og daglegum aðstæðum, þar sem tengsl og traust eru undirstaða alls náms. Starf skólans er jafnframt mótað af þekkingu á taugaþroska barna og áhrifum streitu á nám og hegðun. Því leggjum við ríka áherslu á fyrirsjáanleika, skýra dagskipan, skynvænt umhverfi og stöðug tengsl við fullorðna sem barnið treystir.
Við vinnum samkvæmt áfallamiðaðri nálgun, þar sem öryggi, ró og tengsl eru í forgrunni. Þegar barn upplifir traust og stöðugleika skapast forsendur fyrir nám, vöxt og virkri þátttöku.
Gott starfsumhverfi er lykilatriði í starfi Þorláksskóla. Við leggjum áherslu á ró, skýrleika og stuðning í starfi kennara, þar sem vellíðan starfsfólks skapar meiri nærveru og öryggi fyrir börnin.
Foreldrasamvinna er grundvallarþáttur í starfi skólans. Við vinnum í nánu samstarfi við foreldra til að tryggja samfellu milli heimilis og skóla og að styrkleikar barnsins fái að njóta sín í báðum umhverfum.
Þorláksskóli er sprottinn af ást foreldra, reynslu úr kerfinu og trú á að hægt sé og nauðsynlegt sé að gera betur.
Skólinn er tileinkaður Jóni Kristjáni, sem er 5 ára og einhverfur og öllum þeim einhverfu börnum sem þurfa meiri skilning, stuðning og tækifæri til að þroskast á sínum forsendum.
Í dag bíða hundruð barna eftir þjónustu sem þau þurfa strax. Fjöldi einhverfra barna fá ekki snemmtæka íhlutun og missa þannig dýrmætan tíma í þroska og námi.
Núverandi skólar eru yfirfullir og skortir verulega sérhæfða aðstoð til að mæta einhverfum börnum sem þurfa mikinn skilning og stöðugleika en því miður falla þau alltof oft á milli kerfa.
Þorláksskóli er framlag í átt að lausn við gífurlega mikilli þörf sem er uppi og von um að enginn verði skilinn eftir.
Upphafið
Vilt þú vinna með okkur?
Við leitum að samstarfi við fagfólk, fyrirtæki og aðra sem vilja taka þátt í uppbyggingu Þorláksskóla og vera hluti af lausn sem setur þarfir einhverfra barna í forgang.
Viltu hjálpa okkur af stað?
Þorláksskóli er að leita að styrktaraðilum sem vilja leggja sitt af mörkum til að byggja upp fyrsta heildræna skóla landsins fyrir einhverf börn.
Jónsvegur ehf., eigandi Þorláksskóla, er óhagnaðardrifið félag og leitar nú að styrktaraðilum sem vilja leggja sitt af mörkum til að byggja upp fyrsta heildræna skóla landsins fyrir einhverf börn.
Með þínu framlagi getum við tryggt að Þorláksskóli opni með þeim gæðum, stuðningi og aðbúnaði sem börnin eiga skilið.